Könnun

Á ég að læsa siðunni minni?

Auglýsing

Athygilsverð-síður

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Jólinn!!



Nammibannið í mánuð!!

Spjallkubbur

..Augnablik

Prinsessan

Prinsessan heitir Hanna Lára Ólafsdóttir. Dóttir Ólafs Ragnars Eggertsonar (látinn), og Málfriður Gunnarsdóttir framkvæmdastjóri í Heyrnarhjálp. Yngst 3ra systkina,1. Eggert Helgi Ólafsson ('66), kona hans Ása Kristín ('69), synir þeirra 1. Ólafur Theodór ('89) 2. Maríus Ernir (´91) . 2. Mási Ólafsson ('78). Hanna Lára ólst upp í Reykjavík til 5 ára aldurs. Flutti þá til Noregs og var send í Vetlandskole sem var mjög góður og var því send 6 árum flutti aftur til Reykavík í Vesturhlíðaskóla og Hlíðaskóla .Kláraði grunnskólann þar og fór í Iðnskólanum í HF og læra hárgreiðslu og kláraði nú í vor og hluta af vinnusamningur og er nú að vinna í Hárgreiðslunni Helenu og stubbalubbar. Hún hefur búið í Birkihlíð í Suðurhlíðunum, Lækjarhvammi í HFJ.

Ég á litla prinsessu, Hrafntinnu Máneyjar. Hún er 2 ára og er í leikskóla, Henni finnst svo gaman að fara í leikskólann og leika við mömmu sinna ;) Mamma elskar hana mjög mikið!.

Ásamt heimavinnandi móðir vinnur hún í SHH(Samskiptamiðstöð) Kennari, Hárgreiðslustofu Helenu og stubbalubbar og Hárgreiðslustofu Guðrúnar..



Prófíll

  • Nafn: Hanna Lára ólafsdóttir
  • Netfang: hannalara85@hotmail.com
  • Staður: Hafnarfjörður
  • Atvinna: Hárgreiðsludama

Innskráningar kubbur

Litla Skvísan

Smá fólkið!!!

Mæðradaginn 11. maí og djamm í gær

18. maí 2008 klukkan 18:21


Besta gjöfin mín í mæðradaginn :) Algjör krútt!!

Svo var djamm í gær. Takk fyrir kvöldið, það var rosalega gaman!.

Hér eru myndir :)

Farið vel með hvoraðra !

Hanna - djammdrottning :)

Stolt af stelpunni minni :)

13. apríl 2008 klukkan 22:50


Soldið fyndið á endanum, hún datt og vissi varla hvernig á að beygja eða stoppa þá, datt bara og hló :)





Hérna fór hún í lyftu. :)  Dugleg stelpa fór alveg upp í toppinn :)


Önnur myndband :) Get alltaf horft aftur og aftur

Þjóðhátið 2008, besti heimaeyjan mín í heimi!!

03. apríl 2008 klukkan 17:52

Já maður er að stefna á því að fara til eyja 2008 og skemmta sér kornulega vel!!..

Búin að kaupa far í herjólf fyrir mig og Sindra, til öryggis. :) En víst ætla ég fara!! .. Fer fimmtudag og heim mánudag :)

Drifið ykkur að kaupa núna. :)
 
www.herjolfur.is

Krúttið mitt í fyrsta skiptið í slysó!!

18. febrúar 2008 klukkan 11:03
Hún Hrafntinna Máney, slasaðist heima og fekk fallegan gat í ennið, musturinn var svona T... henni brá svakalega og hágrét, hún datt á skápaborðið, þar sem sjónvarpið er.

Sindri heyrði að hún grét svo mikið og hann kom fram og spurði hvað er í gangi, en hrökk við þegar hann sá blóð var að flæða úr ennið á Hrafntinnu og hugsaði bara "SLYSÓ" Við vorum heppnar að vera búin að borða. Selma, Mási og Róbert voru hjá okkur þá í matarboð.

Ég var sjokkeruð en held ró í mér. Það gekk ótrulega vel. Við fórum svo beint til slysó og Hrafntinna var alltaf að detta í. En við Sindri reyndum að tala við hana og segja sögur til að hún vakar þangað til í slysó. Náðum því og klukkan var orðin 9-hálf tiu. Ekki skrýtið ef hún myndi sofna í bilnum.

Fengum að fara strax inn og fara á barnaherbergi, fullt af dóti að leika og Hrafntinna fannst margar bækur þarna skemmtilegar. Beiðum soldið stund, siðan hittum við læknin og þægileg hjúkka.
Hrafntinna vildi alls ekki að leggjast í rúm og ég ræddi við hana að ég mun vera hjá henni og halda hendina og læknin mun skoða ó ó í ennið. Það var sætt og hún samþykkti. hihi

Siðan fattaði Hrafntinna að það var sprautu (til að deyfa), hún var nýlega í blóðprúfutöku og henni fannst það vont. Þá brjálaðist hún og var skithrædd en á endanum þurftum við Sindri að halda hana niður ásamt 2 aðrar hjúkka. Ein hjúkka og læknir gekk frá því. Það var hrikalegt erfitt að sjá svona en svona er það til að hjálpa og laga.

Á meðan við heldum hana niður, talaði ég og Sindra við hana oft á sama tíma hehe... krúttið í okkur.. :P

Þegar þetta var búið þá jafnaði hún sig og fékk að sjá sig í spegill. Hissa og brosti bara. :) fékk bangsarör og teygju f. hárið.

Á leiðinni til apótek var hún sprelllifandi, skliljanlegt að vera vakandi eftir svona erfiðan átök. Í apótekinu fékk hún að velja svala að drekka og hvernig plástur, mikkimús, bangsimon eða prinsessu, mikkimús var valin. Svo keypti Sindri 2 bækur líka, Skólinn hans barbapabbi og emma meiðir sig. Voðalega sátt og kát eftir hafa fengið allt saman.

Komum svo heim fyrir 11 um kvöldið og ég lagði með Hrafntinnu og las báðar nýjustu bækurnar sem hún fékk :)



Fleiri myndir í Hrafntinnusiðu.

Knús.. farið vel með ykkur!! svona getur gerst!

Hvet ykkur að kaupa leikhúsmiða og horfa á ÓÞELLÓ, DESDEMÓNA OG JAGÓ

26. janúar 2008 klukkan 19:10
Óþelló-Desdemóna og Jagó
Leikgerð Gunnar Gunnsteinsson
byggt á Óþelló eftir William Shakespeare

Litla sviðið

Frumsýning 24. janúar 2008

Leikstjóri: Gunnar Gunnsteinsson

Sýningunni má líkja við óvissuferð þar sem eitt af frægustu verkum leikhúsbókmenntanna er notað sem grunnur að ferðalaginu. Leikgerðin endurspeglar mismunandi tjáningarform mannsins, þrána eftir samskiptum og hversu ólíkum aðferðum hver og einn beitir í samskiptum sínum. Sagan verður sögð af dansara í hlutverki Óþelló, leikara í hlutverki Jagó og heyrnarlausri leikkonu í hlutverki Desdemónu, svo að úr verður blanda af dansi, táknmáli og tali . Þessi ólíku tjáningarform munu á einhverjum tímapunkti renna saman með ófyrirséðum afleiðingum. Sýningin hlaut styrkt frá Menntamálaráðuneytinu.

Leikarar:Hilmir Snær Guðnason og Elsa Guðbjörg Björnsdóttir
Dansari:Brad Sykes

Þýðing texta: Helgi Hálfdanarson,
Þýðing á táknmál: Elsa Guðbjörg Björnsdóttir
Búningar: María Ólafsdóttir
Hárgreiðsla: Hanna Lára Ólafsdóttir
Lýsing: Björn Bergsteinn Guðmundsson
Danshöfundur: Ástrós Gunnarsdóttir
Leikmynd: Vignir Jóhannsson
Tónlist: S. Rúnar Þórisson
Leikstjóri og höfundur leikgerðar: Gunnar I. Gunnsteinsson
Famkvæmdastjóri: Margrét Pétursdóttir

Verkið er samstarfsverkefni Draumasmiðjunnar, LR og ÍD

Þið sáið rauðan stafir, ég ákvað að laumast að setja það inn... :) Bara svo þið vitið að ég var e-h smá hluta af þessu :)

Ég mæli með því að þið farið á sýninguna. ALVEG GLÆSILEGT!!! 
Bein ýtting til að bóka miða!!.
http://www.borgarleikhus.is/event_further.asp?event_id=4101


 

Hefur einhver áhuga???

20. janúar 2008 klukkan 22:19
Kom mér athygli að sjá þetta...

Hvaða hvaðaaa.. segir ég og trúi þessu ekki ...

Danmerkurmót í sjálfsfróun.

Danskur sálfræðingur ætlar í maí að standa fyrir fyrsta Danmerkurmótinu í sjálfsfróun. Markmiðið er að afla fjár til að auka fræðslu um kynferðismál.

Danska blaðið Politiken segir frá þessu. Meistaramót af þessu tagi hafa verið haldin í Bandaríkjunum frá árinu 2000. Þar hafa verið sett ýmis met og þannig mun kona hafa fengið 49 sinnum fullnægingu á sex tímum en karlmaður nokkur sex sinnum á sama tíma.

Nú hefur sálfræðingurinn Pia Struck fengið heimild frá höfuðstöðvunum í San Francisco til að halda slíkt mót í Kaupmannahöfn. Hún segir við Politiken, að markmiðið sé að fá fram umræðu um sjálfsfróun sem enn sé feimnismál hjá mörgum. Einnig eigi að afla fjár svo hægt sé að skipuleggja námskeið um kynlíf.

Struck segir, að mikill áhugi sé fyrir mótinu og þegar hafi 25 manns skráð sig til leiks. Hún segist vonast til, að mótið verði jafn stórt og mót sem haldið var í Lundúnum nýlega þar sem 250 manns tóku þátt

Copy af mbl.is

Kv Hanna Lára

Gullmolinn minn og Noregs

14. janúar 2008 klukkan 22:00


Gullmolinn minn... :) Við erum að fara til Noregs eftir 50 dagar :) 5-9 mars

Brúðkaupsræðuna handa Ástu og Egils 26.12.07

09. janúar 2008 klukkan 20:30
Kæru brúðhjón og aðrir gestir.

Elsku Ásta og Egill, það fyrsta sem ég vil segja við ykkur er  ;  Hjartanlega til hamingju með brúðkaupsdaginn ykkar!

Ég er góð vinkona hennar Ástu Sólveigar og heiti Hanna Lára. Ég er heyrnarlaus eins og flestir vita og hún Ásta Sólveg kann táknmá og á heyrnarlausa vinkonu. Og hér stend ég og tala til hennar á sjálfan brúðkaupsdaginn!.

Ég hitti Ástu fyrst í Háteigsskóla árið 2000 þegar samræmdu prófin voru alveg að koma. Ásta Sólveig hafði mjög gaman af því að læra táknmál og var alltaf að spyrja um hvernig þetta og hitt væri á táknmáli. Við fórum að hittast af og til. Og auðvitað var það voða gaman fyrir mig að hún vildi læra meira og meira í málinu mínu.

Við Ásta misstum sambandið í smá tíma, en sem betur fer náðum fljótt saman aftur og vináttan varð meiri og betri en nokkru sinni áður. Það var aveg ómissandi að þekkja hvor aðra.

Við höfum gert margt skemmtilegt saman, eins og að spá í stráka, segja leyndarmál og gista, laumast út að djamma (úss!) og margt fleira. Gelgjutimabil. :) Hún Ásta er frábær persónleiki og það er gott að umgangast hana. Það er líka auðveld að segja henni allt... en allar stelpur þurfa að eiga trúnaðarvinkonu.

Ég veit það sjálf og ætla að segja ykkur hér, að það er ekki alltaf auðveld að eignast og eiga vinkonu sem er heyrnarlaus. Mér finnst ég vera heppin að eiga Ástu sem vinkonu, sem er stolt af kunna táknmál og stefnir á að læra meria í framtíðinni.

Mig langar að segja eitt dæmi hvað það getur verið mikil "vinna" að eiga mig sem vinkonu. Siðasta sumar fórum við saman í sumarbústað með krakkana okkar, ekta vinkonuferð. Einn daginn í sól og blíðu á leið frá Borgarnesi, dettur mér í hug að fara að taka myndir af stelpunni minni, henni Hrafntinnu. Það var svo flott stór Kók-dós þarna úti í móa. Ásta beið í bilnum, Hjálmar Ingi var þreyttur. Ég gleymi mér alveg og er komin langt frá bilnum, mynda og mynda og tek ekki eftir neinu. Allt í einu sé ég að Ásta veifaði og reyndo að segja e-h á táknmáli við mig eins og við þurftum að færa okkur. Við færðum okkur en .... ég hafði grenilega ekki séð rétt hvað hún var reyna að segja mér. Þá kom hún hlaupandi með Hjálmar Inga í fanginu og sagði að ég væri á golfvelli og fólkið vildi komast að og spíla sitt golf !!

Ég heyrði ekkert í fólkinu sem hrópaði og kallaði á mig og var örugglega orðið öskureitt út í mig og að verða raddlaust af öllu öskrinu. Þá kom mín góða vinkona og reddaði mér út úr aðstæðunum með litla kútinn sinn í fanginu!! Ég er henni þakklát fyrr, en það var ekki skemmtilegt fyrir hana eða mig!! en við erum ennþá góðar vinkonur.

Svo er það hann Egill :) Ég man vel eftir honum þegar þau Ásta voru nýbyrjuð saman. Ég man eftir kvöldinu þegar ég sá hann fyrst, en þá ar hann að leigja íbúð með vinum sínum. Þau voru svo ástfangin og falleg.

Ég er viss um að hún Ásta er heppinn með þennan góða strák sem hefur sýnt mér ýmislegt jákvætt um sjálfan sig. Ásta er mjög hamingjusöm og ángæð með að hafa kynnst sinum Agli. Ég man líka eftir að Ásta sagði mér þegar þau voru nýbyrjuð saman... að hann  Egill vildi strax þá í framtíðinni vildi hann að hún ýrði mamma barnanna hans. Það er mikið traust til Ástu og hann greinilega ástfanginn af henni. Og er nokkuð yndislengra en hann litli Hjálmar Ingi sonur þeirra.

Ég er alveg klökk en glöð yfir því að þið, Ásta Sólveig og Egill, eruð búin að gefa hvort öðru heit um tryggð, því þið eigið bæði gott skilið. Margt sem ég hef séð og heyrt sem sýnir að þið standið alveg ótrulega þétt og vel saman gegnum erfiðleika og á góðum tímum. Megi það að haldast ævina út.

Ég vil enda þessi orð til ykkar, Ásta Sólveig og Egill, á því að segja að mér finnst mjög vænt um ykkur og vona að við sem vinkonur og við sem fjölskyldur eigum eftir að varðveita vináttuna vel og eiga margar hlýjar og góðar stundir saman í framtíðinni.

Ég vil einnig nota tækifæri til að óska foreldrum Egils til hamingju með 40 ára brúðkaupsafmælið, sem í dag.

Skálum nú fyrir nýgiftu hjónunum og þeim sem farið hafa veginn saman í 40 ár.Til hamingju kæru vinir!



Hanna Lára Ólafsdóttir

Áramótaheitinn...

06. janúar 2008 klukkan 23:44
Hæhæ allir!!

Ég kláraði ekki seinustu bloggi.. og ég ætla fá að klára skrifa blogg hérna núna.. :)


Já, jólin er búin að vera notalegt og gott. Fyrsta skiptið að hafa jól í mitt eigið heimili. Það komu 8 í mat með okkur 3 þá 11 manns saman í mat. Við höfðum 4 réttir mat. (SKO EKKI SNIÐUGT) hehe... höfðum 1. melona með parmaskinka 2. humarsúpa 3. Gæs með allskonar meðlæti 4. köku eftir hafa opnað fullt af pökkum ( var alveg pakkaflóð að það fyllist líka í ganginum)

Þegar ég eldaði humarsúpuna þá fór allt rafmagnið af í ibúðinni því að ég notaði 3 pottar til að elda humarsúpuna og tók ekki eftir að það fór að sjóða á fullu og flæddi yfir út um allt að það var e-h öryggi fyrir að það kviknar ekki. Þannig slökknaði allt í ibúðinni, mér brá mjög mikið og var alveg stressuð og taugaveikluð. Elskuleg karlinn fór bara að sjá restinn um allt matinn. Þá slakaði ég loksins á og allt gekk vel, tengdamamma kom með helluborð sem var hægt að setja í samband til að redda öllu saman.
Jamm fyrsta jólinn minn í minu heimili :)

Fórum í brúðkaupið Ástu og Egils þann 26 des. Það var svo flott brúðkaup.. fékk oft klökk og fannst allt svo fallegt :) Enda greiðaði ég hárið hennar Ástu, alltaf gaman að gera eitthvað sem gleðjast aðra :) Svo held ég soldið langan ræðu í brúðkaupsveislu hjá Ástu og Egils, kannski set ég ræðuna hér inn ef Ásta og Egill samþykkja það :) Magga Auður kom og túlkaði, sem betur fer fékk ég túlk því það var á annar jóladag og var erfitt að fá túlk.

Hægt að sjá myndir hjá Ástu og fjölsk - www.123.is/familian  nokkrar myndir af mér í ræðuna. Og sjáiði hvað Ásta og Egill svip... :)


Áramótin var líka góð. Við keyrðum til Bakka, flugvöllur þar sem flýgur til Vestmannaeyjum. Tók bara um 5-6 mín að fljúga. Voða stuð að ég fékk að sitja framst með flugstjóri. Fékk besta útsýnið . Hrafntinna fannst það svo gaman að fara í flugvél. Borðuðum góðan mat, blómkálsúpa forrétt, hamborgarahryggur með öllu, svo fromas eftirréttur. HEppnaðist vel með brennu og flugeldasýning  þrátt fyrir frestaði allt í Rvk. Svo var alveg brjálað flugelda um nóttina. Hrafntinna leist ekkert vel á flugeldum en fljót að jafna sig að hún vil bara standa sjálf og benda og segja vá vá endalaust.

Fyndið að það er búið að vera leiðinleg veður fram til við förum til eyja var dagurinn góð svo ætlum við heim 2 januar með flugi til Bakka þá var dagurinn líka góð (þá fékk ég aftur að sitja framst með flugstjóri) hihi , en þar í milli var vont og leiðinleg veður og lika eftir heimkomuna. 

Okkur fannst að við bara búin að hlaða okkur mikið batterí að vera í eyjum, svona letibær!!..
Læt nokkrar myndir að fylgja með...















Nú er ég komin með nýjan vinnu, Cleopatra í Dalshrauni, ég þarf venjast að vera þar, því það er örðuvisti stað og umhverfi. Annars mjög fín kona sem á staðinn.  Minnti mig mikið á mágkonunni minni Ásu :) hvernig hún talar og svipin. Allur pakkinn hehe. Spá hvað Ása segir að ég skrifaði þetta... ;)

Mér finnst að jólatímabíl er búið að vera fljót að líða... Dagurinn í dag er siðasti dagur.. langar að hafa öll ljósin áfram og jólalegt.

Fórum með Hrafntinnu í þrettándabrennu en Hrafntinnu list ekkert vel á brennuna, vildi bara fela sig. Vorum bara stuttan tíma. Svo vorum við með smá boð hérna heima, fiskisúpa, guðsérlof ekki það jólamatur hehe (búin að fá ógeð af jólamatnum.. sennilega búin að þyngjast 3-4 kilo yfir jólin ups...) ... fjölskylda Sindra komu og horfðum á ERTU SKARPARI EN SKÓLAKRAKKA. Sakar ekki að bjóða fólkinu súkkulaðiköku sem ég bakaði í dag.

Hann Sindri stóð sig vel, munaði litlu að hann tapaði en vildi stoppa og fékk 650þús vinning. :) Stolt af honum.

Áramótinheitinn minn, ætla ég að standa mig vel í skóla, fá meistaraprófið og lifa lifandi lifinu með Sindra minn.

Skemmtileg reynsla framundan....jújú..Elsa sagði mér að það er likilegt að ég fá að hugsa um hárið hennar Elsu og fleirum ef það er líka í boði, Elsa og hitt fólkið fer að leika Óþelló sýning lok janúar og nokkrar sýning eftir það.. :) Það verður skemmtilegt að ég fá reynslu ríkari. Svo bauð Mási brói mér að vera veislustjóri í hans 30 ára afmæli í sumar. Það verður gaman allt saman :)

Ætli það sé komið... :) soldið langt núna en held þið verðið fegin að sjá blogg af mér.. er það ekki??? :P

Knússs XXXXX

HannaLára- farið vel með hvoraaðra á nýju ári!


Amsterdam

27. nóvember 2007 klukkan 09:15
Vitið menn..... Brottförasvæðinu týndi ég myndavélina mína... :( Svo ég hef engu tekið mynd nema stelpurnar mínar sem fóru með. Þannig ég hef enga mynd í bili...

Hafði samband við keflavikflugvöll og þar er myndavél sem er vonandi mín... Bara krossa puttana og þið gerið það fyrir mig líka.. :)

Já Amsterdam... mjög spés og datt ekki í hug hvað og hvernig hús voru þarna, ég hef ekki séð nein einbýli í amsterdam...bara LANGA ÞÉTTAR MJÓA raðhús. Bæinn er skemmtileg og fræg fyrir styttum og króna.

Fimmtudaginn vorum við allar með bindi og stuð.  Þegar við vorum lent til Amsterdam fórum við beint til hótelið og hótelið er rosa flott, ég hef aldrei farið svona fína hótel þegar ég fer út. Skildum farangur eftur og fórum beint niður í bæ, fengum okkur að borða,  skoða og versla líka. Við öll fórum að versla fyrir pakkaleikur.. Um seinnipartin fórum við einhverja þýska veitingarstað og maturinn var eins og heimamatur.. fyrst fékk ég disk með kjúkling ásamt engu.. ég hugsaði bara er engin grenmeti eða meðlæti.... svo kom bara fleiri skálar og maður ráða hvað maður vil. Sniðugt. Endaði með því við fórum öll í hótelið, slappa af, drekka smá, spjalla og gefa hvoruöðru pakkana.